Miðvikudagur febrúar 08 , 2012

Um Okkur


Hugmyndin að Gestaferðum kviknaði árið 2005.

En rekstur fólksfluttninga á eigin bifreið hófst árið 2007, þegar keyptur var nýr 17 manna Renault Master.

Vorið 2008 var þeim bíl skipt út fyrir nýjan Irisbus , glæsilegum 24 manna bíl með loftkælingu, tvöföldu gleri, hallanlegum sætisbökum, beltum, geislaspilara og DVD o.fl

Gestaferðir hefur lagt metnað sinn í að bjóða uppá nýjar eða nýlegar bifreiðar til að gera ferðina þægilegri og skemmtilegri. Við erum í samstarfi við aðila í tengdum rekstri.

Takmark okkar.
Hvort sem hópurinn er stór eða smár, akstur til og frá flugvelli, hringferð um landið, skoðunarferð um höfuðborgarsvæðið, einkaferð með eða án leiðsögumanns, leikhúsferðir eða eitthvað annað, þá reynum við að gera okkar besta til hjálpar.
Hópferðir – leikhúsferðir – helgarferðir – uppákomur – félaga - skólaferðir – ferðir með eða án leiðsögu.